Stormandi

Konsept- og innanhússhönnun

Stormandi

Þróun og útfærsla heildarhugmynda, rýmishönnun og innréttingar fyrir fyrirtæki – rými sem laðar fólk að, aftur og aftur.

Sjá verk ↓

Verk

Sara Jónsdóttir

Ég er konsept- og innanhússhönnuður í Reykjavík, menntuð í markaðs- og viðskiptafræði og hef víðtæka reynslu af markaðssetningu. Þessi bakgrunnur hefur mótandi áhrif á hvernig ég þróa rými og hvernig ég tvinna saman hagnýtt notagildi og aðlaðandi fagurfræði. Bakgrunnur minn hefur jafnframt áhrif á hvernig ég miðla sérkennum, sjálfsmynd og vörumerki viðskiptavina. Oft vinn ég með fyrirtækjum frá grunnhugmynd til útfærslu: vörumerkið og heildarhugmyndin þróast í samvinnu og í kjölfarið móta ég rýmið, lýsingu, efnisval og sérsmíði í eitt heildarkonsept.

Ég sæki innblástur í rýmin sjálf, form þeirra og sögu, þegar hún hefur eitthvað áhugavert fram að færa. Þannig öðlast gömul bensínstöð nýtt líf sem diner og gömul kexverksmiðja sem samkomustaður. Í sköpunarferlinu treysti ég þó fyrst og fremst á eigið innsæi, sem að mínu mati leggur grunninn að góðri niðurstöðu.

Hafa samband

Netfang[email protected]
Sími+354 691 6993
Instagram@stormandi
StaðsetningReykjavík